Afþreying

Engum þarf að leiðast á Vesturlandi því fjölbreytnin í afþreyingu er mjög mikil og ekki síst fyrir barnafjölskyldur.



KvöldgangaFjöldi gönguleiða af öllum erfileikastigum eru víðsvegar um Vesturland sem leiða mann um hverja perluna á fætur annarri. Skipulagðar jöklaferðir eru á Snæfellsjökul og Langjökul með mismunandi farartækjum jafnvel hundasleðum.

 

Ferjan Baldur á leið í siglinguBátsferðir um Breiðafjörð er sannkallað ævintýri fyrir alla aldurshópa, hægt er að velja um ævintýrasiglingu, fuglaskoðun eða bara renna fyrir fisk í soðið.

 


Hvanneyri - hestar á reiðNokkrar hestaleigur bjóða upp á útreiðatúra um fallegar náttúru og hægt er að velja milli tíu golfvalla hver með sína sérstöðu.

 


VeiðimaðurVesturland skartar gjafsælum veiðistöðum hvort heldur er í ám, vötnum eða við strandlengjuna.

 


Sundlaugin í BorgarnesiEftir góðan dag er við hæfi að láta þreytuna líða úr sér í einhverri sundlauginni sem finna má víða á Vesturlandi.