Bátsferðir
Nokkrir aðilar á Vesturlandi bjóða upp á siglingar og sjóstangaveiði sem er skemmtileg afþreying fyrir fók á öllum aldri.
Í rúm tuttugu ár hafa Sæferðir í Stykkishólmi boðið upp á ævintýrasiglingar og fuglaskoðun um Breiðafjörð þar sem gefst að smanna nýveitt sjávarfang.
Bílferjan Baldur er með daglegar siglingar frá Stykkishólmi að Brjánslæk með viðkomu í hinni óviðjafnanlegu Flatey. Skemmtileg dagsferð fyrir alla fjölskylduna.