Golf
Á Vesturlandi eru 10 golfvellir þar af tveir 18 holu vellir, Garðavöllur á Akranesi og Hamarsvöllur við Borgarnes.
Vellirnir eru mjög fjölbreyttir, hver með sína sérstöðu. Hraun, vatn, skógur og fallegt útsýni fylgir með.
Flestir golfklúbbar bjóða upp á sumarkort og yfirleitt er að auðvelt að fá teigtíma.
Tilvalið fyrir golfara að dvelja nokkra daga á Vesturlandi og spila 10 mismunandi golfvelli og njóta góðrar þjónustu á hinum fjölmörgu veitinga- og gististöðum sem eru í boði á svæðinu svo ekki sé talað um náttúrfegurðina sem er auka bónus.