Kjósarstofa er samfélags- og upplýsingamiðstöð og bókunarþjónusta fyrir Kjósina. Í Kjósarstofu má fá upplýsingar um gönguleiðir í Kjós, versla handverk og fræðast um náttúru og sögu Kjósarinnar, matarmenningu og atvinnulíf.
Opið virka daga frá 10:00 til 16:00 og laugardaga frá 14:00 til 18:00.