Pakkhúsið í Ólafsvík er gamalt verslunarhús, byggt árið 1844. Þar er til húsa Byggðarsafn Snæfellsbæjar og handverksala heimafólks.
Handverkssala er á fyrstu hæð og þar er einnig hægt að kaupa kaffi og bakkelsi.
Byggðarsafnið er á efri hæðinni þar geta gestir upplifað íslenskt alþýðuheimili 19. aldar og skyggnst inn í atvinnu- og lifnaðarhætti sjómanna fyrr á öldum. Í risinu er sýningin "Krambúðarloftið" sem ber íslenskri verslunarsögu vitni. Þar má finna ýmsa verslunarvöru, svo sem saltfisk og gúmmískó, sem höndlað var með forðum.
Í upphafi gegndi Pakkhúsið hlutverki birgðargeymslu en síðar var m.a. rekin verslun í húsinu. Þar spurði fólk frétta, skiptist á skoðunum og dreypti á kaupmannsbrennivíni sem geymt var undir búðarborðinu.
Þess má geta að Ólafsvík telst elsti verslunarstaður landsins, en árið 1687 gaf konungur út skipun þar sem hann viðurkenndi Ólafsvík sem verslunarstað.