Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

0,1 km
0,5 km
0,1 km
6 km
0,1 km
3 km
0,5 km
0,5 km
0,1 km
Upplýsingamiðstöðvar, Sýningar, Setur og menningarhús, Gestastofur, Bókasöfn, Handverk og hönnun
Reykholt
320, Reykholt
www.snorrastofa.is
433-8000
433-8008

Reykholt í Borgarfirði er einn sögufrægasti staður landsins. Þar er eitt elsta mannvirki á Íslandi, Snorralaug. 

Snorrastofa var reist til minningar um Snorra Sturluson og einstæð verk hans. Stofnunin vinnur að rannsóknum í miðaldafræðum og sögu Borgarfjarðar og miðlar þekkingu með sýningum, ýmsum viðburðum, ráðstefnuhaldi og bókaútgáfu. Einnig er þar safnabúð með íslensku handverki, listmunum og bókum um sagnfræði og bókmenntir.
 
Gamla kirkjan í Reykholti var reist 1885-86 og var í notkun sem sóknarkirkja til 1996. Hún tilheyrir nú húsasafni Þjóðminjasafns Íslands sem annast viðgerð hennar. Snorrastofa sér um gömlu kirkjuna á vegum Þjóðminjasafns, en hún er opin gestum staðarins.
 
Nýja kirkjan í Reykholti var vigð 28. júli 1996. Hún er rómuð fyrir góðan hljómburð og eru þar haldnir tónleikar allt árið. Hápunktur tónleikahalds er Reykholtshátið, sem haldin er í lok júli ár hvert.
Í Snorrastofu er gestahúsnæði fyrir gesti Snorrastofu og Reykholtskirkju og aðstaða fyrir ráðstefnur og mannamót.
 
Snorrastofa er einnig svæðismiðstöð fyrir upplysingar um næsta nágrenni.
Opið Virkir dagar: Laugardagar: Sunnudagar:
1. maí - 31. ágúst: 10:00-18:00
10:00-18:00
10:00-18:00
1. september - 30. apríl: 10:00-17:00
Lokað
Lokað
Opið eftir samkomulagi um helgar.