Opnunartími

01/06 - 31/08
Vetrar afþreying, Söfn, Sýningar
Hvanneyri
311, Borgarnes
844-7740

Landbúnaðarsafn Íslands er byggt á grunni Búvélasafnsins sem starfað hafði á Hvanneyri um langt árabil. Búvélasafnið var fyrst opnað almenningi sumarið 1987. Þá höfðu starfsmenn Bútæknideildar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins gert upp nokkrar vélar og útbúin hafði verið dálítil geymslu- og sýningaraðstaða, sem síðan hefur verið aukin og bætt.

Sýning safnsins er i Verkfærahúsinu á Hvanneyri, sem lengi hýsti búvélaprófanir Verkfæranefndar og síðar Bútæknideildar Rala, svo og vélfræðikennslustofu Bændaskólans og fleira.

Síðustu 14 árin hefur safnið verið opið um ársins hring, og er á móti gestum tekið eftir þörfum og pöntun. Sumarmánuðina júní-ágúst hefur safnið verið opið daglega. Gestafjöldi á hverju ári hefur verið um fimm þúsund manns.

OpnunartímiVirkir dagar:Laugardagar:Sunnudagar:
júní - ágúst:12:00-17:00
12:00-17:0012:00-17:00
Einnig opið eftir samkomulagi yfir veturinn.