Opnunartími

15/05 - 15/09

Þjónusta

1 km
,3 km
,3 km
,5 km
,5 km
,5 km
8 km
,1 km
,2 km
,3 km
,5 km
,1 km
,2 km
40 km
Upplýsingamiðstöðvar, Söfn, Sýningar, Kaffihús
Grundargata 35
350, Grundarfjörður
www.sagan.is
438-1881
893-7714

Heimsókn í Sögumiðstöðina í Grundarfirði er upplifun þar sem nostalgían tekur völd.

Þar lifnar sagan þegar sagnafólk leiðir þig inn í sýningar um líf alþýðufólks á síðustu öld. Fólks sem barðist úr sárri fátækt til nútímalegs samfélags. Minningar vakna um afa og ömmu og skyggnst er inn í lífið í sveitinni og í litlu þorpi við sjóinn.

Ólátagerði er fyrir börnin þar sem þau fá að leika sér og læra um gömul leikföng og skoða Þórðarbúð, fyrsta leikfangasafnið á Íslandi. Þar sem allir verða börn.

Sögumiðstöðin er einnig svæðismiðstöð fyrir upplýsingar um allt er viðkemur ferðaþjónustu í nágrenninu.

Kaffi Emil  er í Sögumiðstöðinni og þar er einnig internetaðgangur.

Opnunartími - upplýsingamiðstöð Virkir dagar: Laugardagar: Sunnudagar:
15. maí - 15. september: 10:00-18:00
10:00-18:00 10:00-18:00