Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Fjölskyldu- og skemmtigarðar, Söfn, Sýningar, Handverk og hönnun
Skúlagata 17 - Englendingavík
310, Borgarnes
www.bruduheimar.is
530-5000

Brúðuheimar eru lista- og menningarmiðstöð tengd brúðuleiklist, þar sem leiksýningar, námskeið, safn og kaffihús mætast á fallegum stað í líflegu andrúmslofti.

Leikbrúðusafn

Í leikbrúðusafni Brúðuheimar er að finna fjöldann allan af áhugaverðum persónum, fyrirbrigðum og forynjum. Margir góðkunningjar eru þar á ferð, eins og Pappírs Pési, Einar Áskell og Litli Ljóti Andarunginn, en einnig eru þar varhugaverðar verur eins og skógarnornirnar úr Ronju Ræningjadóttur. Safnið er að hluta til gagnvirkt og hafa ungir sem aldnir gaman af því að prófa sig í brúðuleik um stund.

Leikhús

Leikhús Brúðuheima býður upp á fjölbreyttar brúðuleiksýningar, bæði fyrir börn og fullorðna. Boðið er upp á barnasýningar flestar helgar og fullorðinssýningar eru í boði fyrir hópa og erlenda ferðamenn. Sýningar fyrir erlenda ferðamenn eru bæði í boði á ensku og þýsku, auk þess sem Brúðuheimar bjóða upp á sýningar án orða.

Gjafavöruverslun

Í Brúðuheimum er að finna gjafavöruverslun þar sem eingöngu er boðið upp á handverk sem hannað er og unnið á vinnustofum Brúðuheima og aðrar vörur sem tengjast beint verkefnum þeim sem aðstandendur Brúðuheima hafa unnið að. Öll gjafavara er hönnuð af Bernd Ogrodnik, listrænum stjórnanda miðstöðvarinnar og er hans aðalsmerki að vinna alla sína hönnun í tré.

Kaffihús

Sjárvarkaffi - kaffihús Brúðuheima býður gestum upp á gómsætar, ljúffengar og hollar veitingar. Hvorki er notaður hvítur sykur né hvítt hveiti og lögð er áhersla á að nota lífrænt hráefni eins og kostur er. Engu að síður eru kökurnar hjá Brúðuheimum dísætar og ljúffengar.  Kaffihúsið er staðsett í fallegum, uppgerðum, aldagömlum húsum í skjólsælli vík sem kallast Englendingavík.  Útsýni er út á Borgarfjörð og á góðviðrisdögum geta gestir notið veitinga utandyra.

Fylgstu með okkur á Facebook 

OpnunartímiMánudagar - Föstudagar
Helgar
1. sept. - 16. janúar10:00-18:00
13:00-17:00
1. maí - 31. ágúst
10:00-21:00
10:00-21:00
17. janúar-mars
lokað
lokað