Á sunnanverðu Snæfellsnesi, 119 km frá Borgarnesi,
574
356, Snæfellsbær

Á Arnarstapa var áður fyrr kaupstaður og mikið útræði og lendingin var talin ein sú besta undir Jökli.

Arnarstapi er vinsæll ferðamannastaður, þar er tjaldsvæði, gistihús og veitingastaður. Þaðan er einnig boðið er upp á ferðir á Snæfellsjökul.

Ströndin milli Arnarstapa og Hellna er friðland síðan 1979. Gönguleiðin þar á milli er að hluta gömul reiðgata.

Steinlistaverkið  Bárður Snæfellsás eftir Ragnar Kjartansson myndhöggvara setur mikinn svip á svæðið..

Smábátahöfnin var endurbætt árið 2002 og er í dag eina höfnin á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þaðan koma menn af ýmsum stöðum á landinu og gera út dagráðra báta yfir sumartímann.