Norðaustan við Bifröst í Norðurárdal
1
311, Borgarnes

Baula er áberandi fjall sem  sést viða af úr Borgarfirði. Það er keilulaga, 934 m hátt líparitfjall, 3 miljón ára gamalt innskot.

Gengið er  á fjallið að suðaustan eða suðvestan frá Bjarnardal, vegnúmer 60. Fjallið er er mjög bratt, með skriðum, hálflaust stórgrýti er  á leiðinni að öðru leiti torfærulaust en seinfarið.

Mjög fallegt útsyni er af tindinum, gestabók er þar í grjótbyrgi.