Einkunnir eru klettaborgir sem rísa upp úr mýrunum norðan Borgarness. Nafnið er fornt og kemur fyrirí Egilssögu. Fólkvangur í Einkunnum er um 270hektara svæði í landi Hamars. Markmið friðlýsingar Einkunna er að vernda jarðmyndanir og votlendi í þágu útvistar almennings, náttúruskoðunar og fræðslu.
Frekari upplýsingar um Einkunnir er að finna á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is
Sýnum gott fordæmi og göngum vel um landið. Spillum ekki gróðri eða jarðmyndunum og truflum ekki dýralíf. Ökum ekki utan vega og notum merkta göngu- og reiðstíga. Kveikjum ekki eld á grónu landi og tökum allt sorp með okkur af svæðinu.