Um 2 km frá Gufuskálum í átt til Hellna.
574
360, Hellissandur

Skammt frá Gufuskálum má finna rústir á annað hundrað byrgja þar sem fiskur var þurrkaður og geymdur en á Gufuskálum var verstöð.

Byrgi þessi eru talin vera 500 - 700 ára gömul.

Um 10 min. ganga er frá veginum við Gufuskála (vegnúmer 574) upp að nokkuð heillegu byrgi sem má skríða inn í. Að innan er byrgið manngengt.