Breiðafjarðarferjan Baldur siglir frá Stykkishómli til Brjánslækjar með viðkomu í Flatey.
58
345, Flatey á Breiðafirði

Gömlu íbúðarhúsin, verslunarhúsin og pakkhúsin í Flatey bera vitni um bjartsýni og uppgang um aldamótin 1900.

Flatey var fyrrum miðstöð verslunar við Breiðafjörð og mikil verstöð. Hansakaupmenn áttu þar verslunarhús en árið 1589 fékk Íslendingur í fyrsta sinn tímabundið verslunarleyfi í Flatey og 1777 varð Flatey kauptún.

Flateyjarbók, eitt merkasta handrit Íslendinga, var varðveitt í Flatey á miðöldum. Ljósprent af Flateyjarbók er til sýnis í elstu bókhlöðu landsins en hún var reist árið 1864 á mesta blómaskeiði menningarlífs í Flatey.

Kirkjan sem nú stendur var byggð 1926 en myndir í hvelfingu hennar gerðu Kristjana og Baltasar Samper og sóttu myndefnið í mannlíf og atvinnuhætti eyjanna. Flatey hefur verið listamönnum og fræðimönnum upplifun og fjölbreytt yrkisefni.

Brúðkaupið mynd eftir Baltasar Kormák var tekin í Flatey sumarið 2007.

Hótel, gistiheimli og veitingastaður eru í eyjunni.