1
301, Akranes
Norðan Akrafjalls liggur Grunnafjörður. Grunnafjörður er friðlýst svæði í samræmi við ákvæði Ramsar samningsins um votlendissvæði sem hafa alþjóðlegt verndargildi, einkum vegna fuglalífs. Sérstaða svæðisins fellst meðal annars í því hversu víðáttumikið svæðið er en þar finnast mörg stór svæði með mismunandi leirugerðum sem er forðabúr fjölmargra fuglategunda. Í fjörðinn renna ár og lækir sem fæða hann ferskvatni og fiskgengd , lax, urriða og bleikju er þar nokkur.
Svæðið er alþjóðlega mikilvægt, einkum sem viðkomustaður margæsa, rauðbrystings og sanderlu á leið sinni milli meginlands Evrópu til heimskautasvæðanna bæði að vori og hausti. Um 25% margæsastofnsins hefur viðkomu í Grunnafirði á þessum ferðum sínum.
Við Grunnafjörð og í næsta nágrenni hans verpa einnig fjölmargar fuglategundir, svo sem, sendlingur, lóuþræll, sandlóa, tjaldur, æðarfugl og máva- og andtegundir auk þess sem hafarnarpar hefur verpt þar.
Grunnafjörður er mjög áhugaverður staður fyrir fuglaskoðara og útivistarfólk en forðast skal mikla umferð yfir hávarptímann.