Hellnar var um aldir ein af stærstu verstöðvunum á Snæfellsnesi.
Bergrani austan við höfnina heiti Valasnös þar er hin rómaði hellir sem nefnist Baðstofa. Litbrigði í hellinum eru mjög breytileg eftir birtu og sjávarföllum, fallegastur er hann talinn vera snemma morguns í sólskinni á háflóði.
Ásgrímssbrunnur á Hellnum kenndur við Ásgrím Hellnaprest (1758-1829). Hann hjó brunn í bergið þar sem aldrei hafði áður verið vatn.
Hellnar er vinsæll áningarstaður ferðamanna í mestu nálægð jökulsins, þar er hótel, kaffihús og gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.