Í Borgarfirði, 55 km frá Borgarnesi, milli Reykholts og Húsafells.
518
311, Borgarnes

Ein allra fegursta náttúruperla landsins. Ótal fossar sem spretta úr hraunjaðrinum og falla í Hvítá.

Hraunfossar, Barnafoss og næsta nágrenni voru friðlýst 1987.

Bílastæði eru við Hraunfossa og veitingasala er þar yfir sumarmánuðina.

Frá bílastæðinu er gönguleið að útsýnispalli þaðan sem fossarnir sjást vel.