Skömmu áður en komið er að Bifröst er beygt út af þjóðvegi no 1, afleggjari vel merktur.
1
311, Borgarnes

Paradísarlaut er falleg vin í hrauninu nokkru neðan við fossinn fallega, Glanna í Norðurá.

Frá bílastæði og þjónustuhúsi er gönguleið að Paradísarlaut og fossinum. Gerður hefur verið góður útsýnispallur þaðan sem fossinn Glanni sést vel.

Í þjónustuhúsinu er hægt að kaupa veitingar og þar er opið yfir sumarmánuðina.