Norðan Húsafells um 2 km frá bænum Fljótstungu.
518
311, Borgarnes

Víðgelmir er stærstur allra hella á Íslandi og einn stærsti hraunhellir í heimi. Hann hefur að geyma fallegar ísmyndanir og þegar innar dregur má sjá marga dropsteina og hraunstrá.

Árið 1993 fundust mannvistarleifar í hellinum.  Þær eru nú til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands, Suðurgötu 41 í Reykjavík.

Hellirinn hefur verið friðaður síðan 1993 og er innganga í hellinn eingöngu leyfð með leiðsögn. Leiðsögumenn frá Fljótstungu bjóða upp á stuttar (1 klst.) og langar (3-4 klst.) ferðir.  Vinsamlegast hafið samband við ferðaþjónustuna í Fljótstungu fyrir bókanir og upplýsingar.

Víðgelmir er af sérfræðingum talinn vera einn merkilegasti hellir í heimi.