Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull
Landsvæðið vestast á Snæfellsnesi er oft nefnt undir Jökli.
Heillandi náttúra og merkar sögulegar minjar urðu til þess að Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var tofnaður 28. júní 2001. Markmiðið er að auðvelda fólki að ferðast um svæðið og kynnast því. Hann er fyrsti þjóðgarður á Íslandi sem nær í sjó fram.
Sérstaða þjóðgarðsins felst í nálægðinni við sjóinn og samspili mannlífs og náttúru. Þjóðgarðar eru þjóðareign og er öllum frjálst að fara um þá, samkvæmt þeim reglum sem um þá gilda.
Þjóðgarðsvörður sér um daglegan rekstur þjóðgarðsins í umboði Umhverfisstofnunar. Yfir sumarmánuðina starfa þar landverðir við fræðslu, upplýsingagjöf, eftirlit og umhirðu. Skipulagðar gönguferðir eru nokkrum sinnum í viku. Gestir eru hvattir til að leita upplýsinga og fræðslu hjá starfsfólki þjóðgarðsins.
Mjög fjölbreytt dagskrá er í Þjóðgarðinum á sumrin þar sem meðal annars er sérstök barnadagskrá. Sjá nánar á vefsíðu þjóðgarðsins
www.ust.is/snaefellsjokull.
Bæklingar og annað kynningarefni um lífríki Þjóðgarðsins er til á nokkrum tungumálum og má nálgast þá í
upplýsingamiðstöð í Gestastofu á Hellnum.
Engin tjaldsvæði eru í þjóðgarðinum.