Á síðustu árum hafa augum manna opnast fyrir mikilvægi þess að varðveita strandmenningu okkar. Einn liður í þeirri menningu eru vitarnir sem hafa lýst sjómönnum leiðina allt frá því að fyrsti vitinn var reistur að Valahnúk á Reykjanesi árið 1878. Í dag hefur Siglingamálastofnun umsjón með 104 ljósvitum en þá er ótalinn fjöldi innsiglingar- og hafnarvitar í eigu og umsjá sveitarfélaga.
Líkt og með kirkjur eru margir sem ferðast á milli vita og mynda þá eða njóta umhverfisins og sjávarloftsins sem leika um þá.
Í bók Siglingastofnunar Vitar á Íslandi - Leiðarljós á landsins ströndum 1878 – 2002 er mikinn fróðleik að finna um allt er viðkemur vitum á Íslandi.
Íslenska vitafélagið er félagsskapur sem heldur á lofti fræðslu um vita og aðra strandmenningu á ýmsan máta meðal annars með erindum og fróðlegir heimasíðu,
www.vitafelagid.com.
Á Vesturlandi eru um 15 vitar en aðgengi að þeim er miserfitt. Vitarnir eru merktir inn á Þjónustukortið af Vesturlandi sem er hér á forsíðu.
Vitar sem auðvelt er að nálgast
Á Akranesi eru er lítill vit frá 1937 sem stendur við Langasand og annar stór sem stendur á Breiðinni þaðan sem útsýni er mjög fagurt.
Litlir vitar eru á Kirkjuhóli nálægt Ytri Tungu í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsnesi og að Arnarstapa.
Malarrifsviti er mjög tignalegur reistur árið 1946. Hann var friðaður árið 2003 ásamt sex örðum vitum þegar haldið var upp á 125 frá því að fyrsti vitinn var reistur.
Vitar eru á Svörtuloftum og á Öndverðarnesi. Vegslóð liggur að Öndverðarnesi.
Á Súgandisey við höfnina í Stykkishólmi er ljóshús sem upprunalega kemur frá Gróttuvita en var flutt þaðan og komið fyrir í Súgandisey árið 1948.