Ferðatillögur á Vesturlandi

-

Bjarnarhafnarfjall - gönguferð

Ganga á fjallið er í léttari kantinum enda fjallið ekki nema um 575 metrar yfir sjávarmáli. Best er að hefja gönguna við afleggjarann að bænum Bjarnarhöfn eða þegar búið er að aka um hálfa leið að bænum. Stefnt er á dal í fjallinu er heitir Fagridalur og er gönguleiðin hægra megin í dalnum.

Göngumenn fylgja brúnum Fagradals og er toppurinn nálgast má auðveldlega sjá hvar hann liggur. Stefnan er þá tekin þangað en hæsti tindur fjallsins heitir Skipþúfa og er eins og fyrr sagði 575 mys. Líklegt er talið að nafnið sé komið frá þeim tíma er menn skokkuðu á fjallið til að svipast um eftir væntanlegum skipum.

Gott útsýn er af fjallinu yfir Snæfellsnes og Breiðafjörð.