Ferðatillögur á Vesturlandi

-

Hreðavatn - fjölskylduferð

Ein leiðin er að ganga í rólegheitum í kring um vatnið og upplifa fjöruna ásamt skógarlífinu við vatnið en hvorutveggja býður upp á marga möguleika fyrir áhugasöm börn og foreldra þeirra.

Ekki er síðra að aka eða ganga upp brekkuna sem er norðvestan til við vatnið en þegar komið er yfir hálsana þar opnast falleg dalverpi sem svo sannarlega má nýta til útivistar og leikja.

Á  heimleiðinni er upplagt að koma við í Paradísarlaut og enda daginn á því að leggjast þar niður og eiga rólega stund í faðmi þessa ótrúlega staðs.