Ferðatillögur á Vesturlandi

-

Kirkjufell - gönguferð

Fyrir þá sem kjósa að ganga á Kirkjufellið verður að benda á að það er ansi bratt og víða laust í hlíðunum alls ekki fyrir lofthrædda og því skynsamlegast að fá upplýsingar frá glöggum bæjarbúum kjósi menn þá leið.

Við ætlum hinsvegar að leggja í hringferð um fjallið og aka bílnum að eyðibýli hægra megin við fjallið sem kallast Kirkjufell. Þaðan liggur leiðin milli fjalls og fjöru í orðsins fyllsta skilningi. Hvergi er leiðin erfið né torfarinn og ætti því að henta langflestum. Leiðin segir sig sjálf en þegar hringnum lýkur er komið að öðru eyðibýli er nefnist Háls og þvera göngumenn þá fjallsendan að Kirkjufelli aftur.

Reikna má með að gangan taki á bilinu 2 - 3 klukkustundir.