Leiðin hefst við vörðu eina því sem næst í botni Hvalfjarðar en
bílastæði er við vörðuna og því hættulaust að leggja þar bílum.
Gengið
er upp bratta brekku í gegn um kjarr og lyng en gangan ætti ekki að
vera neinum ofviða.
Þegar upp er komið er
gengið um fallegt heiðalandslag eftir ágætlega skýrum stíg en fljótt
opnast gott útsýn vestur Hvalfjörðinn og yfir Akranesskagann.
Áfram
er haldið norður eftir heiðunum en þvera þarf litla á á leiðinni sem
ætti ekki að vera neinum farartálmi.
Rétt áður
en komið er að brúnum Skorradals er beygt til hægri en stígurinn
kvíslast og því er nauðsynlegt að vera vel vakandi fyrir því.
Gengið
er svo niður hlíðar Skorradals og komið að austari enda vatnsins.
Hvalfjarðarsveit
hefur gefið út tvö ágætis kort með gönguleiðum og þar má meðal annars
finna lýsingu á Síldarmannagötum en kortið má fá víða.