Ferðaupplýsingar
Mjög þægilegt er að ferðast um Vesturland, flestir vegir eru malbikaðir og ekki er um neina háa fjallvegi að fara. Afar sjaldgæft er að vegir lokist vegna snjóa helst er það rokið sem getur hindrað för en á vef Vegagerðarinnar,
www.vegagerdin.is má fá upplýsingar um færð á vegum.
Fjölbreyttir gistimöguleikar eru í boði á Vesturlandi því alls eru 68 staðir sem bjóða upp á mismunandi gistingu þar af eru 16 hótel, 16 bændagistingar og fjögur farfuglaheimili.
Mikið átak hefur átt sér stað á síðustu árum í uppbyggingu tjaldsvæða og eru nú nítján slík svæði á Vesturlandi, mörg hver með mjög góða aðstöðu ekki síst fyrir fjölskyldufólk.
Fjöldi hótela og annarra gististaða er opnir allt árið og því ekkert til fyrirstöðu að eiga góðar stundir á Vesturlandi yfir vetrarmánuðina þegar landið skartar sínum vetrarskrúða.
Upplifðu Vesturland með okkur
Mjög mikil og góð þróun hefur orðið á matarvenjum Íslendinga síðust ár og sést það vel á framboði veitingahúsanna á Vesturlandi.
Aukin áhersla er á að nýta hráefni úr heimabyggð og fjölmörg hótel og veitingahús leggja mikinn metnað í að kynna og framreiða á nýstárlegan máta hin ýmsu hráefni sem koma frá svæðunum.
Hvalfjarðargöng voru formlega opnuð í júlí 1998 og eru um 5,7 km löng. Hægt er að greiða staka ferð um göngin, kaupa afsláttarkort eða velja um mismunandi áskriftarleiðir. Upplýsingar um gjaldskrá og áskrift í göngin má finna á www.spolur.is
Reglulegar strætisvagnaferðir eru milli Höfuðborgarinnar og Akraness, sjá www.straeto.is leið númer 57.
Áætlunarferðir eru frá Reykjavík að Reykholti í Borgarfirði, um Snæfellsnes og norður í land í gegnum Borgarnes og Norðurárdal. Frekari upplýsingar er að finna á www.bsi.is.
Ekkert áætlunarflug er á Vesturland en nokkrir flugvellir án þjónustu eru á Vesturlandi.
Bílferjan Baldur er með reglulegra áætlunarferðir milli Stykkishólms og Brjánslækjar allt árið og yfir sumarið er komið við í Flatey þannig að hægt er að dvelja þar á milli ferða og upplifa lífið á þessari einstöku eyju. Frekari upplýsingar um ferðaáætlun er að finna á www.saeferdir.is