Matur
Mjög mikil og góð þróun hefur orðið á matarvenjum Íslendinga síðust ár og sést það vel á framboði veitingahúsanna á Vesturlandi.
Aukin áhersla er á að nýta hráefni úr heimabyggð og fjölmörg hótel og veitingahús leggja mikinn metnað í að kynna og framreiða á nýstárlegan máta hin ýmsu hráefni sem koma frá svæðunum.
Sex veitingastaðir / kaffihús á Snæfellsnesi bjóða upp á Krókaleið eða „fiskislóð um Snæfellsnes“, en á þessum stöðum er hægt að kaupa sér sjávarrétt sem er sérmerktur Krókunum og kallast „Matur úr héraði“, en slagorð fiskislóðarinnar er „Krókur með bragði“. Upplýsingar um staðina er að finna hér á vefnum undir flipanum
Upplifðu Vesturland – Krókaleið.
Hér fyrir neðan er listi yfir staði sem selja mat en framboðið er mjög fjölbreytt frá skyndibitastöðum til hágæða veitingastaða.