Farðu þér hægt á Vesturlandi.
Máltækið "leitaðu ekki langt yfir skammt" á vel við þegar ferðalagið er skipulagt því á Vesturlandi, örskammt frá höfuðborgarsvæðinu má finna allt sem þarf til að upplifa gott ferðalag.
Saga og menning er í hávegum höfð á svæðinu enda fá ef nokkurt svæði hér á landi sem er jafnríkt af sögunni. Fegurð náttúrunnar blasir við hvar sem litið er hvort sem sjá má fagra fossa, grösuga dali eða hraun með dularfullum myndum.
Dulúð Snæfellsjökuls blasir við öllum ferðalöngum er um Vesturland þeysa en frá aldaöðli hefur þessi eldkeila orðið skáldum yrkisefni og nú síðast rataði hún á hvíta tjald Hollywood heimsins.
Einn fyrsti ferðalangur landsins, Leifur heppni á rætur sínar að rekja í Dalina og hví ekki að feta í hans fótspor með því að eiga leið þar um?
Stuttar vegalengdir eru á milli allra staða á Vesturlandi og því er upplagt að njóta ferðalagsins enn betur með því að þú farir þér hægt á Vesturlandi.
Myndband frá Vesturlandi |
Myndasýning frá Vesturlandi |
|||||||
Taktu forskot á sæluna og skoðaðu stutt myndband sem sýnir þér perlur Vesturlands. |
Fjölbreytni Vesturlands nýtur sín vel í þessari myndasýninu. Hallaðu þér aftur og njóttu vel. |
|||||||


