- Um Vesturland
-Þjónustuleit
Guðrúnarlaug
Laugin í Sælingsdal er elsta laug sem sögur fara af, en laugin hvarf undir skriðu á 19. öld. Laugin þótti heilnæm baðlaug og var mikið notuð til forna, þar sem hennar er getið bæði í Laxdælu og Sturlungu.Nú hefur verið gerð tilgátulaug af þessari fornu laug og byggt við hana blygðunarhús þar sem má hafa fataskipti. Frítt er ofaní laugina og eru gestir í lauginni á eigin ábyrgð.
Back
Markaður við DeildartunguhverBoðið er upp á ferskt grænmeti frá bændum í Reykholtsdal, hverabakað brauð, heimagerðar sultur, ullarvörur, kökur, kleinur og margt fleira.
Opið alla daga í sumar frá kl. 12:00 - 18:00.
Pétur og úlfurinn í BrúðuheimumLeikhús Brúðuheima býður upp á leiksýninguna Pétur og úlfinn á sunnudögum í sumar.
SveitamarkaðurAlla sunnudaga í sumar er haldinn sveitamarkaður að Laxárbakka. Boðið er upp á íslenskt grænmeti, ferskan fisk, harðfisk, kartöflur, heimabakað bakkelsi, íslenskt handverk ásamt flóamarkaði þar sem hægt er að kaupa bæði nótaðar og nýjar vörur.
Nytjamarkaður í BrákareyÁ markaðnum er selt allt mögulegt: bækur, fatnaður, skór, búsáhöld, skrautmunir, húsgögn, vínilplötur, videospólur, dekk, reiðhjól ofl. Opið alla laugardaga frá kl. 12:00 til 16:00.
Norska húsiðSumarsýningar Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla voru opnaðar nýlega í Norska húsinu í Stykkíshólmi.
Þjóðgarðurinn SnæfellsjökullÞjóðgarðurinn Snæfellsjökull býður gestum upp á fjölbreytta dagskrá með landvörðum í sumar.
BrúðuheimarBrúðuheimar var opnað nýlega og er miðstöð brúðuleikhúss á Íslandi, þar sem leiksýningar, námskeið, safn og kaffihús mætast á fallegum stað í líflegu andrúmslofti.
Eldfjallasafn í StykkíshólmiSérstök sýning hefur verið sett upp í safninu varðandi gosin í Eyjafjallajökli árið 2010.

