Góðar stundir á Skaganum
Akranes er tilvalinn áfangastaður fyrir ferðafólk og þar er að finna marga áhugaverða staði og skemmtilega afþreyingu.
Langisandurinn er án efa ein flottasta baðströnd á Íslandi og þar er góð aðstaða fyrir almenning og sjósundfólk. Dagsdvöl á Skaganum á fallegum sumardegi tryggir tanið og hraustlegt útlit.
Í Garðalundi, við golfvöllinn, er Skógræktarsvæði Akurnesinga. Þar eru leiktæki og grillskáli og frábær aðstaða til þess að koma með fjölskylduna eða hópa og eiga góða stund saman. Í námunda við Garðalund er safnasvæðið, skemmtilegt og fræðandi. Þar finna fróðleiksfúsir einstaklingar á öllum aldri eitthvað við sitt hæfi.
Ganga á Akrafjall er kjörin fyrir spræka göngugarpa á öllum aldri, hvort sem farið er alla leið á toppinn eða í lautarferð inn í Berjadal.
Eftir annasaman og ánægjulegan dag er síðan kjörið að setjast niður á einhverjum veitingastaða bæjarins og njóta þeirra lystisemda sem þar eru í boði.