Njóttu lífsins á Skaganum!
Akranes er tilvalinn áfangastaður fyrir ferðafólk og þar er að fnna marga áhugaverða staði og skemmtilega afþreyingu.
Langisandurinn er án efa ein flottasta baðströnd á Íslandi og þar er verið að byggja upp góða aðstöðu fyrir almenning og sjósundfólk og þá er Akrafjall auðvelt uppgöngu og kjörið fyrir fjölskylduferðir.
Þjóðsagan um Elínu glæðir Elínarhöfða skemmtilegum töfrum og gönguferð um Kalmansvík er ógleymanleg með útsýni yfir Faxaflóa allt til Snæfellsjökuls.
Fuglalíf er fjölskrúðugt og fjörurnar við Akranes hrein uppspretta margvíslegra ævintýra. Þá er nauðsynlegt að heimsækja Safnasvæðið í Görðum sem er einn vinsælasti áfangastaðurinn á Akranesi, kíkja í Garðakaffi, skoða Kútter Sigurfara og líka stærsta fingurbjargasafn á Íslandi - og kynnast „Hagamúsinni“...
Fólkið í bænum er vingjarnlegt og leggur sig fram um að taka vel á móti gestum og ferðafólki og ekki má gleyma því að það er gott að „versla“ á Akranesi enda boðið upp á fjölbreytta verslun og þjónustu.
Verið velkomin á Akranes!