Upplifðu nýja staði...
Á Akranesi eru margir áhugaverðir staðir nægir þar að nefna Akrafjallið sem eitt af helstu kennileytum Akraness og laðar að sér fjölda fólks á hverjum degi; fyrir suma er nánast sáluhjálparatriði að ganga á fjallið.
Langisandur, neðan við íþróttamannvirkin á Jaðarsbökkum, er ein besta baðströnd landsins. Að baki áhorfendstukunnar við knattspyrnuvöllinn er sólpallur sem nefnist Aggapallur. Þar eru seldar veitingar á góðviðrisdögum. Langisandurinn er tilvalinn til gönguferða og hvers kyns útivistar.
Breiðin er syðsti hluti Akraness og þar er að finna einn elsta steinsteypta vita landsins sem var reistur 1918. Á Breiðinni er annar viti sem er mun stærri og var reistur 1943-1944. Þar eru líka gamlir skreiðarhjallar og greina má steinilagt stakkstæði þar sem saltfiskur var breiddur út á góðviðrisdögum áður fyrr.
