Yst á Syðriflös á Akranesi
300, Akranes

Fyrsti vísir af vita á Akranesi var ljósker á Teigakotslóð sem kveitk var á árið 1891.

Árið 1918 var byggður steinsteyptur viti yst á Syðriflös á Akranesi eftir teikningu Thorvalds Krabbe verkfræðings. Ljóshúsið var smíðað úr járnplötum úr Goðafossi sem strandaði undir Straumnesfjalli árið áður. 

Vitinn er tíu metra hár með anddyri.Vitinn er með sérstakt útlit. Hann stendur enn þó hann hafi ekki verið notaður frá 1947.

Árin 1943 - 1944 var reistur nýr viti eftir teikningu Axels Sveinssonar verkfræðings. Vitinn er 19,2 m hár, sívalur turn. Efst á vitanum er efnismikið steinsteypt handrið með rimlum. Í vitanum eru fjögur stinsteypt milligólf og stigar milli hæða.

Upplýsingar fengnar úr VItar á Íslandi, útgefandi Siglingastofnun Íslands árið 2002.