Gisting og tjaldsvæði
Tjaldsvæðið á Akranesi er eitt vinsælasta tjaldsvæði landsins, á einstaklega fallegum stað úti við sjóinn í Kalmansvík og aðstaðan þar er eins og best gerist, einnig er úrval gistimöguleika á Akranesi og nágrenni.
Reiðhjólaleiga við tjaldstæðið nýtur mikilla vinsælda enda er óvíða betra að hjóla um en á Akranesi vegna sléttlendis. Frá tjaldsvæðinu er skemmtileg gönguleið með ströndinni að Elínarhöfða, Höfðavík, Innsta-Vog og alveg út á Innsta- Vogsnes.
Stutt er í verslanir og þjónustufyrirtæki frá tjaldsvæðinu og upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk er að Kirkjubraut 54 aðeins í um 10 mínútna göngufæri frá tjaldstæðinu.