Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

8 km
1 km
,5 km
Farfuglaheimili / Hostel, Svefnpokagisting
Suðurgata 32
300, Akranes
868-3332
9
25

Farfuglaheimili Akraness er staðsett í virðulegu húsi þar sem áður var rekið apótek bæjarins. Húsið er í neðri hluta bæjarins, nálægt miðbæjartorginu.

Herbergin eru hlýleg og vel útbúin með eða án sér baðherbergja. Í húsinu eru tvö fullbúin eldhús og rúmgóð setustofa.

Á Akranesi er gróskumikið íþrótta- og menningarlíf, auk safnasvæðis sem er fyrir margt áhugarvert. Þar er meðal annars að finna mjög áhugarvert steinasafn auk Íþróttasafns Íslands svo nokkuð sé nefnt.

Bærinn og byggðin á milli Akrafjalls og fjörunnar einkennist af kröftugu og fjölbreyttu atvinnulífi, mikilli iðkun íþrótta og góðu mannlífi í fjölskylduvænu samfélagi.

Akranes er steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu eða í um 45 km fjarlægð. Sögurík héruð eru í þægilegri akstursfjarlægð frá Farfuglaheimili Akraness og þar má einnig finna göngufær fjöll og fiska í ám og vötnum.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.