Herbergi
Hótel Glymur býður 23 lúxusherbergi. Öll herbergin eru á tveimur hæðum með baðherbergi og setustofu á neðri hæðinni og svefnherbergi á efri hæðinni.
Hvert herbergi er sérhannað, útbúið hágæða ítölsku leðursófasetti og skreytt einstökum listaverkum. Öll herbergi og svítur eru afskaplega vel búin, með þráðlausu interneti, flatskjá, 10 sjónvarpsrásum, síma, míníbar og síðast en alls ekki síst, kaffivél.
Svítur
Svítur Hótel Glyms eru tvær og heita þær Hallgrímsstofa, eftir Hallgrími Péturssyni og Guðríðarstofa eftir Guðríði Símonardóttur (Tyrkja-Guddu, konu Hallgríms).
Svíturnar eru báðar á jarðhæð með eigin verönd og útgangi í heitu pottana.
Mikið er lagt í að skapa gott og afslappað andrúmsloft í svítunum með smekklegum innréttingum og fallegum listaverkjum. Svíturnar eru með öllum sama búnaði og herbergin, auk fullkominna hljómflutningstækja.
Veitingar
Veitingastaður Hótel Glyms býður úrval af grænmetis-, fisk- og kjötréttum, auk eftirrétta. Matseðillinn tekur stöðugum breytingum og tekur mið af árstíðum. Fallegt útsýni er úr matsal yfir Hvalfjörð.
Kaffihúsið er opið á sumrin. Þar eru í boði léttir réttir, samlokur og sætindi. Heitir drykkir og úrvals kaffi.
Þorpið í Glym
Sunnan við hótelið eru sex heilsárshús. Um er að ræða sérhönnuð lúxushús í tveimur stærðum sem innréttuð eru á vandaðan hátt með áherslu á samræmi í umhverfi, litum og aðbúnaði. Stórbrotið útsýni yfir Hvalfjörð úr stórum gluggum sem snúa í suður.
Húsin eru einkar vel búin, með glæsilegu alrými með leðursófasetti, borðstofuborði, stórum flatskjá, listaverkum og fullbúnu eldhúsi. Í eldhúsi er stór ísskápur, uppþvottvél, góð eldavél með ofni, örbylgjuofn og borðbúnaður fyrir 4 – 6 aðila.
Svefnherbergi eru rúmgóð með lúxus rúmum 190 x 200 cm að stærð, náttborðum og rúmfatakistum. Góðir leðurstólar og borð ásamt góðum flatskjá í hverju herbergi. Innangengt er úr svefnherbergi í baðherbergi og þaðan út í heita pottinn.
Öll húsin eru með heitum potti úti á rúmgóðri suðurverönd, útihúsgögnum og öryggiskerfi. Hægt er að kaupa alla þjónustu af hótelinu svo sem morgunverð, kvöldverð, barþjónustu og halda þar stærri veislur.
Fylgstu með okkur á Facebook
Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.