Akrafjallshringur
Gengið er frá vatnsbóli Akurnesinga og upp á Háahnúk (555 m.) og þaðan á Geirmundartind (643 m). Þessi ganga er vel fær flestum en nokkuð löng, tekur um 5 – 6 tíma.
Berjadalur
Gengið er frá tóftum Fosskots og upp svokallaða Selbrekku. Síðan er gengið upp eftir Berjadalsá sem rennur eftir Berjadalnum sem sker Akrafjallið. Þessi ganga er frekar auðveld og lítil hækkun. Á leiðinni má virða fyrir sér fuglalífið og jafnvel finna hreiður. Tímalengd göngunnar fer eftir því hversu langt er farið inn dalinn.
Vatnsból – Pyttar
Lagt af stað frá vatnsbólinu og gengið í norðurátt meðfram svokallaðri Slögu í átt að Pyttum sem er framhlaup úr fjallinu. Leifar af herflugvél sem fórst í hlíðum fjallsins 1955 er að finna skammt uppi í hlíðinni. Ef göngumenn eru frískir er hægt að ganga upp að Pyttum og þaðan aftur til baka. Þessi ganga hentar allri fjölskyldunni þar sem hækkunin er lítil. Tímalengd er um 1 – 1,5 klst, allt eftir því hversu langt er gengið upp í Pytta.
Fleiri gönguleiðir á Akrafjalli
Fosskot / Háihnúkur Gangan tekur um 2 tíma.
Vatnsveita / Háihnúkur Gangan tekur um 2 tíma.
Fosskot / Geirmundartindur Gangan tekur um 2-3 tíma.
Hringur á Akrafjalli Gangan tekur um 3-5 tíma.
Kort af Akrafjalli:
