-

Fjöruferð - fjölskylduferð

Því er upplagt að drífa fjölskylduna með tilheyrandi fatnaði og búnaði upp í bíl og stefna á Bjarteyjarsand í Hvalfirði. Þegar þangað er komið er sjálfsagt að leita leyfis landeiganda til að fá að vafra um fjörurnar.

Oft má finna þarna fínan krækling sem ef til vill má fá leyfi til að týna hann og hafa í forrétt um kvöldið. Einnig er upplagt að fara að bryggjunni í grenndinni en við hana má gefa ímyndaraflinu lausann tauminn eða þá bara hefja sandkastalakeppni á sandinum þar við.
Ekki er verra að taka með sér einhverja góða fræðslubók um fjöruna, velta við steinum og skoða hvað líf leynist þar undir.
Eftir góða fjöruferð er upplagt að tölta við á Bjarteyjarsandi og kanna hvort Gallerí Álfhóll er opinn svo og hvort kaffihúsið lumar á nýbökuðum vöfflum. 
Að sjálfsögðu er svo Hvalfjörðurinn ekinn heim enda óvíða jafnmikil náttúrufegurð.