-

Söfn, golf, sund og sandur!

Nei, þetta er ekki tilvitnun í lag með The Beach Boys, heldur bein tilvísun í sumt af því sem hægt er að gera á einum degi á Akranesi. Safnasvæðið að Görðum er í göngufæri frá hinum margrómaða golfvelli Skagamanna, Garðavelli og sömuleiðis Garðalundi, útivistarsvæði Akurnesinga þar sem finna má leiktæki og sparkvelli fyrir börn á öllum aldri.

Sundlaugin og íþróttavöllurinn að Jaðarsbökkum eru sömuleiðis í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá Safnasvæðinu og svo er útivistarparadísin Langisandur þar rétt fyrir neðan. Fólk getur því auðveldlega átt skemmtilegar stundir á Skaganum, einfaldlega lagt bílnum og gengið á milli staða. Þú getur tekið hring á golfvellinum á meðan börnin leika sér í Garðalundi, gengið þaðan niður á Safnasvæðið og tekið þér góðan tíma í að skoða, spekúlera og upplifa liðna tíma á lifandi safnasvæði. Þaðan liggur leiðin niður á Langasand, þar sem hægt er að hlaupa í flæðarmálinu, tína flotta steina og skeljar eða byggja sandkastala í fínum sandinum. Þennan skemmtilega dag má svo enda með því að skreppa í sund, prófa vatnsrennibrautina og láta þreytuna líða úr sér í heitum pottunum.

 

Eiður Smári, Vilhjálmur og Vala

Íþróttasafn Íslands tilheyrir Safnasvæðinu að Görðum og er um leið skemmtileg viðbót við hina íslensku safnaflóru. Á íþróttasafninu er m.a. hægt að skoða keppnistreyjur þeirra feðga Eiðs Smára og Arnórs Guðjohnsen, keppnisstöngina hennar Völu Flosadóttir, sem hún notaði þegar hún vann bronsið á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 og sjá með eigin augum hversu ótrúlega langt þrístökkið hans Vilhjálms Einarssonar var á sínum tíma. Safnið hefur auk þess að geyma myndir og minningar um áratuga langa og glæsta sögu Skagamanna á knattspyrnuvellinum, sem jafnvel hörðustu KR-ingar hafa gaman af að skoða!

 

Jaðarsbakkalaug á Akranesi

Íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum

við Innnesveg300 Akranesi

Sími: 433 1100

Netfang: hkj@akranes.is

Afgreiðslutími - Heilsárs opnun

Virkir dagar: 06:15-21:00

Helgar: 09:00-18:00

Þreksalur íþróttamiðstöðvar er opin frá kl. 06:15 – 22:00 og frá kl. 09:00 -18:00 um helgar. Lokað er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum.

Akraneshöllin er opin frá kl. 06:15 – 22:30 og frá kl. 09:00 -18:00 um helgar. Lokað er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum.. 

Verð

Fullorðnir 350 kr.

Börn yngri en 13 ára fá frítt í sund.
Leiga á sundfatnaði  350 kr.

Leiga á handklæði 350 kr.
Tenglar

www.visitakranes.is

www.akranes.is 

Auka upplýsingar

Jaðarsbakkalaug er 25m útisundlaug ásamt 5 heitum pottum, sauna og vatnsrennibraut.Íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum er aðal miðstöð íþrótta á Akranesi. Þar er íþróttahús með stórum íþróttasal og þreksal og þar er aðalsundlaug bæjarins, Jaðarsbakkalaug. Þar er einnig aðal knattspyrnuleikvangur bæjarins og hið glæsilega fjölnota íþróttahús, Akraneshöllin. Íþróttasvæðið stendur fyrir ofan Langasand þar sem er hægt að njóta lífsins á góðviðrisdögum.  Á milli Langasands og íþróttasvæðisins stendur Aggapallur, sem er útiaðstaða fyrir gesti og gangandi og unnið er að aðstöðu fyrir sjósundsfólk á sama stað.