-

Taktu Strætó á Skagann!

Nú geta allir tekið strætó á Skagann því frá og með 1. janúar 2006 tengdist Akranes leiðakerfi Strætó bs. í Reykjavík. Þetta þýðir að á um klukkutíma fresti alla virka daga vikunnar og sömuleiðis um helgar, þó ekki eins oft, er hægt að taka strætó, leið 57 frá tengistöð við Háholt í Mosfellsbæ og halda beinustu leið upp á Skaga. Ferðin tekur aðeins um 30 mínútur! Það er því hægt að taka strætó hvar sem er á höfuðborgarsvæðinu, muna eftir að biðja um skiptimiða og komast upp á Skaga gegn hógværu gjaldi  en rétt er að benda á að ýmsir afsláttarmöguleikar eru í gangi, rauð kort og gul og afslættir fyrir eldri borgara, öryrkja og skólafólk.

 

Þetta opnar ekki síst ýmsa möguleika fyrir eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu, sem geta með Strætó átt skemmtilegan dag á Skaganum eða skroppið þangað í síðdegiskaffi.  Fleiri hópar t.d. leikskóla- og grunnskólabörn, auk almennings geta svo að sjálfsögðu nýtt sér þessa nýju og skemmtilegu viðbót við leiðakerfi Strætó.

 

Hér á visitakranes-hugmyndavefnum er svo að finna fullt af góðum hugmyndum um hvað þú getur gert þegar þú kemur á Skagann. Þú getur tekið strætó í sund, golf, á völlinn til að fylgjast með liðinu þínu eða ef þig langar að ganga á Akrafjall. Svo er alltaf notalegt að sitja og horfa út um gluggann og njóta þess að virða fyrir sér það sem fyrir augu ber á leiðinni um Kollafjörð, Kjalarnes og um Hvalfjarðargöngin alla leið til Akraness.

 

Strætó stoppar við Íþróttamiðstöðina að Jaðarsbökkum við aðalsundlaug og íþróttamannvirki bæjarins, m.a. Akraneshöllina. Þaðan er þægileg ganga á Safnasvæðið sem er þar stutt frá og á golfvöllinn líka. Strætó heldur síðan áfram för, með fáeinum stoppistöðvum og endar á Akratorgi í gamla miðbænum. Einnig er hægt að taka Akranes-strætóinn innanbæjar ef svo ber undir. Nánari upplýsingar um Skagastrætó, leiðakerfið og tímaáætlun Strætó er að finna á upplýsingavef Strætó bs., www.straeto.is.

 

Hér má finna tímatöflur og akstursleiðir Akranes-strætó (innanbæjar).

Hér má finna helstu akstursleiðir Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu og tengingu þeirra við Háholt í Mosfellsbæ.

 

Bon voyage!