-

Tillögur að gönguleiðum í nágrenni Akraness

Presthúsavör – Miðvogur

Gengið er frá Presthúsavör og eftir göngustíg meðfram Kalmansvík í átt að Elínarhöfða. Gengið meðfram klettunum þar sem gott útsýni er yfir skerin sem eru þar fyrir utan og fylgst með fuglalífi. Við Elínarhöfða er listaverkið Elínarsæti og um hana er til þjóðsaga en Elín var var rammgöldrótt.  Frá Elínarhöfða er gengið fram hjá Höfðavík og eftir stíg sem liggur inn að Miðvogi.  . Frá Miðvogi er gengið upp með heita læknum sem rennur frá hitaveitutönkunum og má nefna að þar fór fram         sundkennslu áður fyrr. Hægt er að ganga sömu leið til baka eða fara eftir malarvegi sem liggur milli hesthúsahverfisins og Lambhúsatorgs ( við Bónus ). Þessi ganga hentar öllum og tekur um það bil klukkutíma.

Innstavogsnes

Lagt af stað frá Kalmansvík eða Miðvogi og gengið meðfram vegslóða í norðurátt. Farið yfir brúna hjá heita læknum, gengið upp á klettana og gömlu þjóðleiðinni fylgt að friðlandinu á Innstavogsnesi. Á svæðinu eru sjávarfitjar, leirur og gríðarlegt fuglalíf. Þar verpa fjölmargar tegundir s.s. æðarfugl og þarf að fara gætilega á varptíma. Gangan ætti að henta öllum og tekur 1 -2 tíma í göngu, allt eftir því hvort lagt sé af stað frá Kalmansvík eða Miðvogi.

Höfði – Miðgarður

Gengið meðfram fjölbreytilegri og fallegri strandlengju. Sagðar sögur af landnámi Bresasona og býlum á svæðinu að fornu og nýju. Skýr jarðlög má finna í börðum meðfram fjörunni. Hægt að ganga eftir fjörunni báðar leiðir eða fara eftir reiðvegi meðfram þjóðveginum í bakaleiðinni. Gangan hentar flestum sem geta fótað sig í stórgrýti og tekur ríflega klukkutíma.

 

Kort af nágrenni Akranes