Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

,5 km
10 km
1,5 km
,5 km
1,5 km
4 km
1,5 km
1 km
Tjaldsvæði, Sundlaugar
Hvalfjarðarströnd
301, Akranes
www.hladir.is
433-8877
660-8585
0
0

Félagsheimilið Hlaðir er rólegur og fallegur staður við norðanverðan Hvalfjörð, rúmlega 40 mín. akstur frá Reykjavík og 20 mín. akstur frá Akranesi.
 Félagsheimilið Hlaðir er með góðum veislusal/danssal sem tekur allt að 230 manns í sæti og hentar vel fyrir árshátíðir, veislur, ættarmót, fyrirtækjadaga, fundi, ráðstefnur, leiksýningar, tónlistarviðburði, handverksmarkaði, yogakennslu, fyrirlestra, kynningar, markaði og margt fleira. Salurinn er með stóru sviði og tjöldum, fallegum bar og rúmgóðu eldhúsi sem er vel tækjum búið. Hægt er að semja um aðgang að lauginni í tengslum við leigu á félagsheimilinu. Félagsheimilið er leigt út allt árið.

Tjaldsvæðið að Hlöðum
 er stórt tjaldsvæði fyrir tjöld, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Á tjaldsvæðinu er hægt að komast í rafmagn, auk þess sem þar eru tvö tunnugrill, leiksvæði fyrir börnin og góð salernisaðstaða, auk þess sem hægt er að fara í sturtu og vaska upp undir berum himni. Aðstaða er fyrir tæmingu salerna frá húsbílum.

Sundlaugin er austan við félagsheimilið og eru rúmgóðir búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 17 metra löng og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Hægt er að semja um leigu á sundlauginni í tengslum við leigu á tjaldsvæðinu og félagsheimilinu utan opnunartíma.
Opnunartími sundlaugarinnar er alla daga frá kl. 13.00 til kl. 19.00 en lokað á þriðjudögum. Sundlaugin er opin frá 1. júní til ágústloka.

Við viljum hvetja alla til að notfæra sér þessa tilraun og fjölmenna í sund sem er jú allra meina bót.


Hernámssetrið - Hernámssaga Hvalfjarðar er mikil og merk og því hefur Hernámssetur verið sett upp að Hlöðum sem segir sögu hernáms í Hvalfirði frá árunum 1940 til 1945. Hernámsetrið að Hlöðum hefur skapað spennandi sýningu þar sem sjá má minjar sem tengjast sögu og menningu þeirra atburða sem urðu í Hvalfirði á þessum umrótatímum.

Allar upplýsingar veitir staðarhaldari:
 Guðjón Sigmundsson í sími: 433 8877 & 660 8585.

Vinsamlegast hafið samband vegna bókana.