Sundlaugin er austan við félagsheimilið og eru rúmgóðir búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 17 metra löng og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Hægt er að semja um leigu á sundlauginni í tengslum við leigu á tjaldsvæðinu og félagsheimilinu utan opnunartíma.
Opnunartími sundlaugarinnar er alla daga frá kl. 13.00 til kl. 19.00 en lokað á þriðjudögum.