Gisting í sveit, útivist, náttúruskoðun, hestamennska, saga og menning.Gisting á vinalegum sveitabæ við Hvalfjörð. Uppbúin rúm eða svefnpokagisting í fimm herbergjum. Sameiginleg snyrting. Morgunverður ef óskað er. Hægt að leigja í einu lagi tveggja herbergja íbúð, um 70 m2. Skemmtilegar gönguleiðir, fallegt útsýni og fjölbreytt fuglalíf við sjóinn. Á bænum er búið með hesta og boðið upp á fræðslu um íslenska hestinn, stuttar hestaferðir (1 – 2 klst.) og fræðslu um náttúru og sögu svæðisins.
Gisting í uppábúnum rúmum og svefnpokaplássum.Gönguferðir, fræðsla um íslenska hestinn og stuttir útreiðatúrar.Vinsamlegast hafið samband vegna nánari upplýsinga.