Tjaldsvæði - á Þórisstöðum er stórt og gott fjölskyldutjaldsvæði sem liggur við Þórisstaðavatn. Þar er góð hreinlætisaðstaða og hægt er að fá afnot af kolagrilli. Nokkrir rafmagnstenglar eru til staðar en greiða þarf sérstaklega fyrir afnot af þeim. Aðstaða til að tæma ferðaklósett er á staðnum.
Golf - á jörðinni er níu holu golfvöllur. Völlurinn er opinn frá kl. 8.00 til 23.00 nema annað sé tekið fram.
Veiði - boðið er upp á stangveiðileyfi í þremur stöðuvötnum, Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni (Glammastaðavatni) og norðanverðu Eyrarvatni. Veiðileyfi fást á Þórisstöðum.
Súpuskálinn - fyrsta hús til vinstri þegar beygt er inná Þórisstaði og hér er þjónustumiðstöðin. Öll afgreiðsla á Þórisstöðum fer fram í Súpuskála. Súpuskálinn opnar formlega 26.maí 2012 og verður opinn frá 08.00-23.00 alla daga. Líkt og nafnið gefur til kynna má þar fá súpu, en í boði er Sjávarréttasúpa og Mexico kjúklingasúpa ásamt samloku m/ skinku og osti. Gott er að fá sér í eftirrétt vöfflu m/rjóma og kaffi.
Litla Verzlunarhornið - hefur uppá margt fjölbreytt að bjóða þó lítið sé. Þar má nefna gos, nammi, golfvörur, veiðivörur og ferðavörur.
Fjárhúsið - samkomusalur sem tekur allt að 200 manns í sæti. Fjárhúsið er tilvalið fyrir ættarmót, brúðkaup, starfsmannaskemmtanir og aðrar samkomur.
Klafastaðir - sumarhús sem er oft leigt með fjárhúsinu. Með stór forstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og svo er eldhús og stofa í sama rými.
Húsdýragarðinn - Þau dýr sem hægt er að sjá eru: Íslenskar landnámshænur, Amerískar hænur, silkihænur, geitur, kanínur, heimalingur, dúfur, hestar, kálfar, pekingendur, fasanar og kalkúnar.
| Nafn golfvallar: |
Holufjöldi: |
Par: |
Þórisstaðavöllur
|
9
|
66
|