Opnunartími

Allt árið

Þjónusta

Ferðaskipuleggjendur, Bændagisting, Sumarhús, Tjaldsvæði, Gönguferðir, Vetrar afþreying, Dagsferðir, Dýragarðar og opinn landbúnaður, Handverk og hönnun
Bjarteyjarsandur
Hvalfjarðarströnd
301, Akranes
433-8831
891-6626
0
6
1

 

Á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði er stunduð sauðfjárrækt og ferðaþjónusta. Gistingu er boðið upp á í vönduðum sumarhúsum í hlíðinni ofan við bæinn. Gallerí Álfhóll er rekið í súrheysgryfju, aðstaða til móttöku hópa er í gamalli hlöðu og leiðsögn er veitt um valin svæði í Hvalfirði. Á Bjarteyjarsandi er lögð á hersla á umhverfi, menningu og fræðslu. Sérstök áhersla er lögð á móttöku skólahópa á öllum aldri.

Tjaldsvæðið er opið frá 15. maí - 15. september.  Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.