Gistihús
Laxárbakki býður upp á gistingu í gistihúsi. Gistihúsið er
steinsteypt hús með sjö svefnherbergjum, þar sem hægt er að velja milli þess að fá uppábúin rúm eða svefnpokapláss. Sameiginlegt eldhús og stofa
eru í húsinu, auk sameiginlegs baðherbergis.
Leiguíbúðir
Að Laxárbakka er hægt að leigja íbúðir í styttri sem og í lengri tíma. Íbúðirnar eru með öllum þeim þægindum sem krafist er í dag. Með hverri íbúð fylgir geymsla en sameiginlegt þvottahús er fyrir íbúðirnar. Svalir snúa í norður með útsýni er yfir bakka Laxár.
Íbúðirnar, sem eru stúdíóíbúðir, eru 33-47 fm að stærð og leigjast með öllu. Í þeim er tvíbreytt rúm og svefnsófi og rúmar hver íbúð 3-4 einstaklinga. Eldhús, sem er samliggjandi stofu, er vel útbúið með öllu sem þarf til matseldar. Sér baðherbergi með sturtu, sjónvarp og netaðgangur fylgir hverri íbúð.
Veitingar
Veitingarstaðurinn á Laxárbakka er opinn allt árið. Á sumrin er boðið upp á sérstakan grillseðil og heimilismat, en á veturna er heimilismatur á matseðlinum. Á Laxárbakka er einnig tekið á móti hópum og þá er matseðillinn sniðinn að óskum gesta.
Handverk
Íslenskt handverk til sölu.
Afþreying
Margvíslega afþreyingu er að finna í nágrenni Laxárbakka, svo sem sundlaugar, laxveiði, golf og gönguferðir. Unnendur náttúru landsins geta til dæmis skoðað sig um í Hvalfirði, gengið að fossinum Glym í botni fjarðarins eða gengið á Akrafjall. Þá má í nágrenninu finna nokkur söfn svo sem í Hvalfirði, á Akranesi, á Hvanneyri og í Borgarnesi.
Fylgstu með okkur á Facebook
| 2011 |
1x1 án baðs
| 5.000
|
1x2 án baðs
| 8.000
|
1x3 án baðs
| 11.000
|
Svefnpokapláss
| 3.500
|
Rúmföt + handklæði
| 1.000
|
Morgunverður
| 1.100
|
Stúdíóíbúð, 1 nótt
| 18.500
|
Stúdíóíbúð, mánaðarleiga
| 75.000
|