Upplifðu Vesturland

Á Vesturlandi má finna fjölbreytni og fegurð íslenskrar náttúru.  Mikilfengleg fjalla- og jöklasýn, gróðursæl héruð, fjölskrúðugt fuglalíf, fengsælar ár og vötn, firðir og flóar og vellandi jarðhiti.  Auðlindir allt í kring.

En Vesturland er meira en stórbrotin náttúra.  Hér er land og saga órofa heild, sögusvið sagna á borð við Sturlungu, Egils sögu, Eyrbyggju og Laxdælu auk þess sem Vesturland er auðugt af þjóðsögum og ævintýrum.  Ferðaþjónstuaðilar leggja sig fram um að gera söguna aðgengilega fyrir ferðamenn, hver með sínum hætti.  Og um leið verða líka til nýjar sögur af mönnum, tröllum og ævintýraverum.




Krókur með bragði á Snæfellsnesi

MiðnæturgolfÝmislegt má gera sér til afþreyingar á Vesturlandi.  Margar gönguleiðir er að finna á Vesturlandi, hægt er að skella sér á hestbak hjá ýmsum ferðaþjónustuaðilum eða fara í jöklaferðir.  Áhugasamir golfarar geta valið um 10 golfvelli á Vesturlandi.  Þar af eru tveir 18 holu vellir, Garðavöllur á Akranesi og Hamarsvöllur við Borgarnes.

 

 

Sjóminjagarðurinn HellissandiÚrval safna er að finna víðsvegar í landshlutanum.  Byggðasöfn má finna á Akranesi, Borgarnesi, Stykkishólmi og Ólafsvík.  Sérsöfn eru einnig mörg svo sem Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri, Vatnasafn og Eldfjallasafn í Stykkishólmi, Eiríksstaðir í Haukadal, Gljúfrasteinn í Kjós, Sjómannagarðurinn á Hellissandi, Sögumiðstöðin í Grundarfirði, Snorrastofa í Reykholti og Landnámssetur og Brúðuheimar í Borgarnesi.

Yfir 70 gistimöguleikar eru í boði á Vesturlandi, allt frá hefðbundnum tjaldsvæðum til lúxus hótela. Og ferðamenn hafa úr ýmsu að velja í mat og drykk á fjölmörgum veitingastöðum og kaffihúsum í landshlutanum.

Eftir góðan dag á Vesturlandi er svo tilvalið að skola af sér rykið í einhverri af þeim 13 sundlaugum sem er að finna í landshlutanum - jafnvel leita sér heilsubótar við sjúkdómum eins og exemi og psoriasis.

Ekki má gleyma sjálfum Snæfellsjökli, en árið 2001 var Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull stofnaður.  Tilgangur með stofnun þjóðgarðsins var að standa vörð um náttúru svæðisins og merkar sögulegar minjar ásamt því að auðvelda fólki að ferðast um svæðið.  Á sumrin starfa þar landverðir við fræðslu, upplýsingagjöf, eftirlit og umhirðu.  Gefin hafa verið út kort af svæðinu, bæði göngukort og kort af þjóðgarðinum og friðlöndum í nágrenninu.