„Krókur með bragði" á Snæfellsnesi
Á Snæfellsnesi vinnur hópur fólks saman við að kynna gestum lífið við sjávarsíðuna, nálægðina við sjóinn og þá sérstöðu sem hafið skapar á Nesinu.
Staðir, svæði, sýningar og ýmis önnur starfsemi sem með einhverju móti tengjast sjónum og strandmenningu vinna saman eins og „krókar á línu“ við að mynda röð áfangastaða. Með því að rekja sig eftir línunni má upplifa eitthvað sem tengist sjónum á hverjum stað.
smakkaðu á fersku sjávarfangi á ferð þinni um Snæfellsnes.
Nú geta ferðamenn farið „fiskislóð um Snæfellsnes“, en það er sjávarfangsslóði þar sem hægt er að rekja sig milli sex veitingastaða/kaffihúsa. Þar má kaupa sér sjávarrétt sem er sérmerktur Krókunum og kallast „Matur úr héraði“, en slagorð fiskislóðarinnar er „Krókur með bragði“.
Eftirtaldir aðilar bjóða upp á „Mat úr héraði" :