Komdu í ævintýraferð með

Sögu og Jökli!


Á kortinu hér að neðan finnur þú 10 staði, þar sem Saga og álfastrákurinn Jökull lenda í allskonar óvæntum ævintýrum. Saga er níu ára stelpa sem elskar að ferðast með foreldrum sínum. Eitt sinn á ferðalagi hittir hún álfastrákinn Jökul, sem stundum birtist óvænt og stundum þarf Saga að bíða eftir honum leeengi.

Á þessum stöðum er tekið sérstaklega vel á móti öllum krökkum eins og þér. Þegar þú kemur á fyrsta staðinn færðu fallega möppu. Á hverjum stað færðu svo eina sögu um ævintýri Sögu og Jökuls í möppuna þína og stimpil sem sannar að þú varst þarna líka. Þegar þú færð fimmta stimpilinn, færðu litla gjöf - og svo aðra gjöf þegar stimplarnir eru orðnir tíu. Til að fá möppu, stimpil, sögu og gjafir, þarf að kaupa þjónustu á stöðunum. Þú safnar sögunum í möppuna þína svo þú getir lesið þær aftur og aftur.

 

Ævintýrakort

Á stöðunum 10 á ævintýrakortinu finnurðu ekki bara Sögu og Jökul, heldur hafa allir staðirnir eitthvað sérstaklega spennandi fyrir fjölskyldur og börn. Á Eiríksstöðum í Dölum og í Landnámssetrinu í Borgarnesi er hægt að kynnast lífi víkinga eins og Agli Skallagrímssyni og Leifi heppna, sem fann Ameríku. Í heimsókn í Reykholt fær fjölskyldan innsýn í verk og starf Snorra Sturlusonar sem skrifaði Snorra-Eddu og heimili annars rithöfundar, Halldórs Laxness, er að Gljúfrasteini í Mosfellsbæ. Náttúran er í aðalhlutverki í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og í ævintýrasiglingum Sæferða. Á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði fá gestir að upplifa lífið á sveitabæ. Það opnast heill heimur og brúður lifna, í Brúðuheimum í Borgarnesi. Þá er ekki lítið ævintýri að heimsækja heim tröllanna í Fossatúni í Borgarfirði, eða skoða leikfangasafn með 50 ára gömlum leikföngum í Sögumiðstöðinni í Grunarfirði.


Notaðu ævintýrakort Sögu og Jökuls til að skipuleggja ævintýraferðlagið þitt. Smelltu hér til að prenta út kortið.

Saga og Jökull á Vesturlandi er svokallað Gáttaverkefni sem er tveggja ára vöruþróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu, styrkt af iðnaðarráðuneyti, Ferðamálastofu og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, auk þess sem Háskólinn á Hólum er samstarfsaðili.
Samstarfsverkefnið Saga og Jökull á Vesturlandi.
Umsjón: ILDI ehf.
Teiknari: Ómar Smári Kristinsson
Hönnun: Nína Ivanova

Eftirfarandi aðilar koma að verkefninu:
Sögumiðstöðin
Grundargata 35
350, Grundarfjörður
438-1881
www.vesturland.is
Heimsókn í Sögumiðstöðina í Grundarfirði er upplifun þar sem nostalgían tekur völd. Þar lifnar sagan þegar sagnafólk leiðir þig inn í sýningar um ...
15/05 - 15/09
Gljúfrasteinn - Safn Halldórs Laxness
Gljúfrasteinn
270, Mosfellsbær
586-8066
Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið. Húsið er safn Halldórs Laxness þar sem heimili ...
Allt árið
Landnámssetur Íslands
Brákarbraut 13-15
310, Borgarnes
437-1600
Landnámssetur Íslands er í tveimur af elstu húsum Borgarness sem standa í kjarna bæjarins niður við Brákarsundið. Annað er gamalt Pakkhús sem hefur ...
Allt árið
Brúðuheimar
Skúlagata 17 - Englendingavík
310, Borgarnes
530-5000
www.bruduheimar.is
Brúðuheimar eru lista- og menningarmiðstöð tengd brúðuleiklist, þar sem leiksýningar, námskeið, safn og kaffihús mætast á fallegum stað í líflegu ...
Allt árið
Snorrastofa
Reykholt
320, Reykholt
433-8000
www.snorrastofa.is
Reykholt í Borgarfirði er einn sögufrægasti staður landsins. Þar er eitt elsta mannvirki á Íslandi, Snorralaug.  Snorrastofa var reist til ...
Allt árið
Fossatún
Fossatún, Borgarbyggð
311, Borgarnes
433-5800
www.fossatun.is
Fossatún er staðsett um 90 km frá Reykjavík við veg nr. 50, í afar fallegu og nátturulega umhverfi, svo að segja í miðjum Borgarfirði. Öll aðstaða er ...
Allt árið
Sæferðir ehf.
Smiðjustígur 3
340, Stykkishólmur
433-2254
www.saeferdir.is
Sæferðir bjóða upp á daglegar ævintýrasiglingar frá Stykkishólmi.  Í ferðunum getur þú smakkað á hrárri hörpuskel beint úr sjónum, séð þúsundir ...
12/05 - 15/09
Upplýsingamiðstöðin Þjóðgarðinum Snæfellsjökli (Svæðismiðstöð)
Hellnar
360, Hellissandur
436-6888
Gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls er einnig svæðismiðstöð fyrir upplýsingagjöf. Gestastofan kynnir lífríki Þjóðgarðsins á fróðlegan og lifandi ...
20/05 - 10/09
Bjarteyjarsandur sf.
Bjarteyjarsandur
301, Akranes
433-8831
 
Allt árið
Eiríksstaðir
Haukadalur
371, Búðardalur
434-1118
Eirikur rauði og konan hans Þjóðhildur reistu sér bú að Eiríksstöðum í Haukadal eftir því sem segir í Eiríks sögu rauða. Þar er talið að Leifur ...
01/06 - 31/08